Skráning í Söngkeppni NFFG

Stefán Snær Stefánsson | 23. janúar 2012 21:55

Söngkeppni framhaldsskólanna

Söngkeppni NFFG fer fram í Urðarbrunni föstudaginn 10. febrúar. Atburður þessi er einn sá glæsilegasti í atburðadagatali félagsins.

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt er bent á netfangið songkeppni@nffg.is

Í fyrstu verðlaun er glæsilegur farandbikar, þátttökuréttur fyrir hönd FG í Söngkeppni framhaldsskólanna ásamt fleiri flottum vinningum.

Fresturinn til skráningar rennur út á miðnætti 1. febrúar

Nánari upplýsingar má nálgast á fyrrnefndu netfangi eða hafa samband við meðstjórnendur NFFG, þau Söndru Dögg og Karl Elí.

Lifi rokkið,
NFFG