Það er mér sönn ánægja að tilkynna ykkur að vefsíða Nemendafélagsins hefur loksins verið opin. Ástæðan fyrir seinkunni hefur verið vegna anna hjá forritara okkar, Jóhanni Brynjari, en hann sá sér fært um að klára þetta fyrir okkur. Við þökkum honum kærlega fyrir það. Framundan í félagslífinu er margt og mikið, en hæst ber að nefna Söngkeppnina, Keilumótið, Árshátíðina og skíðaferð til Akureyrar. Við fögnum því að loksins getum við tilkynnt stöðu mála á raunverulegri heimasíðu en hingað til höfum við styðst við Fésbókina gömlu góðu. Hún mun samt ennþá þjóna góðum tilgangi í atburðatilkynningu. Á næstu misserum vinnum við í því að bæta við heimasíðuna t.d. spjalli, glósubanka, afþreyingarsíðu og prófíl nemenda. Við ykkur vil ég segja, til hamingju með nýju síðuna og vonandi mun hún slá rækilega í gegn. Með bestu kveðjum, Stefán Snær Stefánsson forseti NFFG